Gredduverðlaunin

Af rímfræðilegum ástæðum hefur sú hugmynd skotið rótum, að tímabært sé að efna til Gredduverðlaunahátíðar. Það blandast engum hugur um, að gredda er mjög snar þáttur í menningarlífi íslendinga og því sé við hæfi að verðlauna þá sem skara ár hvert fram úr örðum á því sviði.

Mikilvægt er, að vel verið vandað til væntanlegra Gredduverðlauna; tilnefningar verði þrautskoðaðar af fagfólki; rökstuðingur fyrir tilnefningum verði studdur haldbærum rökum; áhugafólki verði gert kleyft að sitja í dómnefnd.

Næstu dag verður skipuð nefnd, sem á að gera tillögur um gredduverðlaunaflokka.

-ALy


mbl.is Brúðguminn hlaut sjö Edduverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. er vondur maður

Ég hef löngum verið þeirrar skoðunnar að Steingrímur J. Sigfússon sé vondur maður. Orðbragð hans í garð andstæðinganna sannar það. Það er nákvæmlega sama hvað sagt er og gert er, alltaf skal Steingrímur ráðast af heift á móti öllu. Í ofanálag er maðurinn trúlaus, nema á Stalín og Maó sem drápu 650 milljónir meðan þeir voru við völd.

Ef Vinstrigrænir hafa ekki vit á að skipta Steingrímin J. út fyrir ungt frjálshuga fólk, sem merkilegt nokk er að finna í Vinstrigrænum, þurrkast þessi leiðindaflokkur út. En það er kanske líka best fyrir þjóðina að Steingrímur verði formaður og Vinstrigrænir hverfi af sjónarsviðinu. Alveg.

-SvDr


mbl.is Lengi getur vont versnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valgerður er sanngjörn og jarðtengd kona

Hún er falleg kona hún Valgerður Sverrisdóttir, sanngjörn og jarðtengd. Með öðrum orðum: Hún er stórbrotin sómakona og svo drenglynd að til fyrirmyndar er.

Ekki ræðst Valgerður að ríkisstjórn Geirs Haarde með óþverra aðdróttunum og orðbragði eins og formaður Vinstrigrænna. Munurinn á Valgerði og Steingrími J. er nefnilega sá, að hún er stjórntæk en hann ekki.

Valgerður Sverrisdóttir starfaði um árabil af dugnaði og heilindum í ríkisstjórn með Sálfstæðisflokknum og þjóðin á henn margt gott að gjalda. Þegar hún verður búin að ryðja afdalakarlinum úr Árnessýslu úr formannsstóli Framsóknarflokksins og sjálf orðin formaður er ekki efir neinu að bíða fyrir Sjálfstæðisflokkinn að mynda ríkisstjórn með Framsókn og Frjálslyndum.

-SvDr


mbl.is Gátum ekkert annað gert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin grýtti eggjum og hægðum í Alþingishúsið í gær

Það væri fróðlegt að vita hvaða ólánsgrey skipa stjórn Samfylkingarfélags Reykavíkur. Og hvað gengur þessu trúlausa pakki til með svona samþykkt? Skilur það ekki að Samfylkingin er í órjúfanlegu bræðrabandi við Sjálfstæðisflokkinn út þetta kjörtímabil? Búum við orðið í þjófélagi eintómra svikara sem þykir ekkert eðlilegra en að ganga á bak orða sinna og standa við gerða samninga?

Svo var fullt af samfylkingarpakki niðrá Austurvelli í gæra að henda eggjum og hægðum í Alþingishúsið. Það sá dóttir mín sjálf með eigin augum. Ef Framsóknarflokkurinn er spilltur, þá er Samfylkingin gjörspillt; baneitruð. Framsókn gat þó haldið út heil þrjú kjörtímabil í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og farnaðist vel. Enda mun þjóðin búa lengi að öllum þeim fjölmörgu góðu málum sem sú ríkisstjórn stóð að og framkvæmdi.

Ef ég stjórnaði Sjálfstæðisflokknum myndi ég reka Samfylkinguna úr ríkisstjórninni og taka Framsókn og Frjálslynda inn í staðinn. Það yrði góð stjórn sem gæti leitt aðsteðjandi vandamál til lykta.

-SvDr


mbl.is Vilja kosningar í upphafi nýs árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómeltanlegur Icesavehroði ofan í komandi kynslóðir

Þegar gjöra skal góða veislu er talið nauðsynlegt að fengnir séu til verka lærðir matsveinar sem kunna með veisluföng að fara. Á ríkisstjórnarheimilinu er öðruvísi farið að. Þar elda nautgripafóðurmeistarar IseSavesteikur á sama hátt og blábjánar hunsbelgjarglás með rottuholusaladi. Nú skal eitra fyrir þjóðinni með ómeltanlegrum IceSavehroða og reikningurinn sendur á komandi kynslóðir.

Meðan Ingibjargarhaardið dundar sér við eldavélina, koma bjöggarnir og jónásgeirarnir fram í kastjósin, hver af öðrum, með krókódílatár í augnkrókunum og sverja við allt sem heilagt er, að þeir hafi ekkert af sér gert. Þvert á móti hafi einhverjir andskotar gert þeim svo ljóta glennu að þeir hafi tapað bæði bönkum og skotsilfri.

Það þarf engann að undra þó mikið góðæri ríki um þessar mundir í stétt lífvarða á Íslandi, eða Icesavelandi eins og gárungar í útlöndum kalla landið núorðið.

-ALy


mbl.is Búist við tilkynningu um IceSave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleygt í illþefjandi fjóshaug

Aumingja blessuð manneskjan hún Herdís Egilsdóttir að þurfa að taka við veðlaunum úr lúkunum á varaformanni Sjálfstæðisfloksins. Herdís Egilsdóttir hefur ekkert til unnið, á sinni löngu, farsælu ævi, sem réttlætir svo skammarlega framkomu við hana.

Þorgerður Katrín er kvinna sem þjóðin vill burt úr stjórnmálum og opinberu lífi almennt. Að vera varaformaður sótsvörtustu spillingarsamtaka þjóðarinnar er meðal þess lægsta af öllu lágu sem fundið verður á Íslandi. Að taka við verðlaunum úr höndum þessháttar paura, er fljótt á litið eins og að vera fleygt illþefjandi fjórhaug. Það á sú mæta kona, Herdís Egilsdóttir, síður en svo skilið af þjóð sinni.

Við íslendingar lifum á viðbjóðslegum tímum skítlegs eðlis og ósóma. En brátt glymur klukkan þeim sem dregið hafa þjóð vora niður í svaðið.

-ALy


mbl.is Herdís Egilsdóttir fær verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilega óþverralegt tungumál

Það hefut lögngum verið siður íslendinga að útbía tungumál sitt með hræðilegum orðum og orðaleppum. Það er eins og þjóðin líti á tungumál sit sem eina alsherjar gróðrastíu formælinga, blótsyrða og kláms. Enda má íslensku máli finna þvílíkann aragrúa íllskeyttra, smansúrraðra orða og orðasambanda, að með ólíkidum er. Orðljótir menn eru í hávegum hafðir á Íslandi; því níðinglegri sem þeir eru í kjaftinum, því betra. Klámskáld eru og mikils metin og soralegur hugsunarháttur þeirra talinn til dyggða. Þá eru íslendingar engir eftirbátar annarra í að nota tungumál sitt til lyga og ílls umtals um náungann.

Að tileinka þessu orðljóta tungumáli heilann dag á ári er fullkomin ósvífni. Það er eins og að efna til hátíðahalda, einu sinni á ári, til heiðurs fjóshaugum landsins.

Megi Drottinn gefa oss nýtt tungumál, laust við fúkyrðaflaum, bölv og ragn.

-SrB


mbl.is Dagur íslenskrar tungu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammist ykkar fíflin ykkar

Mér er hulin ráðgáta hverju þetta blessað fólk er alltaf að mótmæla, það hefur aldrei komið fram neinstaðar. Vilja þessir auðnuleysingjar kanske sofétkommúnisma? Vilja þeir að alli séu sárfátækir eins og á Kúbu? Eða halda þeir að nú sé lag til að efna til óeirða, óeirðanna vegna? Mér spurn.

Ekki kæri ég mig um að afgamlir kannabishippar taki völdin af réttkjörnum valdhöfum, valdhöfum sem hafa staðið sig ótrúlega vel við erfiðar aðstæður. 

Skammist ykkar fíflin ykkar!

-SvDr


mbl.is Tveir mótmælafundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðindafundur í Wasington

Allt stefnir í afleitann leiðindafund í dag hjá Bush karlaumingjanum í Wasington. Bæði er, að engum dettur í hug að hlusta á eitt einasta orð forseti Bandaríkjanna mælir af munni fram, þrátt fyrir mikla stríðssigra hans í fjarlægum löndum, sem og hitt að Bush er talinn eihver vitgrannasti þjóðhöfðingi sem uppi hefur verið að Idi Amin og Bokassa keisara í Miðafiríkulýðveldinu meðtöldum.

Nú er því ekki að neita, að leiðtogarnir 20 sem ætla að funda í dag eru miklir karlar og kreppukóngar, sem eiga allir það sameiginlegt að vita ekki sitt rjúkandi ráð. Kapítalisminn óx þeim yfir höfuð og hefur nú kreist úr þeim allan vind. Það eina sem þessir stóru leiðtogar geta gert af viti í Wasington í dag er að fara á barinn og svo á hóruhús í kvöld, en þar eru þeir á heimavelli ef ég þekki þá rétt.

-ALy


mbl.is Leiðtogafundur í Washington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vöðlubjúga

Mikið skelfilega pissuðu þau mæðginin Ingibjörg og Haarde framhjá skálinni í dag. Í stað þess að segja af sér eins og heiðarlegar manneskjur á blaðamannafundinum, gerðu þau bragð úr ellefta boðorðinu og buðu reiðu fólki og skelkuðu upp á vatnssósa kattarláfujafning. Þessar kræsingar kalla mæðginin "Umfangsmiklar arðgerðir til bjargar alþýðufólki."

Já, - þau kunna að skemmta landanum mæðginin Ingibjörg og Haarde.

Það er heldur ekki amalegt að hafa búið við Bör Börsson í hverjum banka til skamms tíma.

-ALy


mbl.is Ný greiðslujöfnunarvísitala tekin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband