Vöðlubjúga

Mikið skelfilega pissuðu þau mæðginin Ingibjörg og Haarde framhjá skálinni í dag. Í stað þess að segja af sér eins og heiðarlegar manneskjur á blaðamannafundinum, gerðu þau bragð úr ellefta boðorðinu og buðu reiðu fólki og skelkuðu upp á vatnssósa kattarláfujafning. Þessar kræsingar kalla mæðginin "Umfangsmiklar arðgerðir til bjargar alþýðufólki."

Já, - þau kunna að skemmta landanum mæðginin Ingibjörg og Haarde.

Það er heldur ekki amalegt að hafa búið við Bör Börsson í hverjum banka til skamms tíma.

-ALy


mbl.is Ný greiðslujöfnunarvísitala tekin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtilegt og trúverðugt innlegg í umræðuna

Guðni Erlendsson (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 23:57

2 identicon

Þú átt fína samheitaorðabók en að hverju beinist gagnrýni þín helst, svona efnislega á ég við?

Urf (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 02:31

3 Smámynd: Blaðamenn Foldarinnar

Ég er sammála þér, Guðni, að pistill minn er trúverðugt innlegg í umræðuna. En skemmtilegt er það ekki. Ingibjargarhaardekreppan er ekki skemmtun, því mun ég aldrei halda fram. Það mikill sóðaskapur að pissa framhjá skálinni, um það geta allir verið sammála. En að þrífa ekki upp eftir sig er enn meiri sóðaskapur.

Ég veit ekki eftir hverju þú ert að fiska, Urf. En sennilega eru að reyna að fiska í grugguðu vatni. Ef ég á að vera hreinskilinn, þá leiðist mér fólk sem er gjarnt á að skrökva; blandar saman sannleik og lygi svo úr verður ein þefill alsherjar marglyttuslepja.

-ALy

Blaðamenn Foldarinnar, 15.11.2008 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband