Gordon segir Geir að halda kjafti
10.10.2008 | 18:38
Eitthvað er hann skuggalegur undirtónninn í bréfi Gordons Brown til Geirs Haarde.
Á milli línanna má lesa annan texta, furðu illskeyttann, sem hljóðar eitthvað á þessa leið: Nú skalt þú, herra Haarde, hafa vit á að grjóthalda kjafti, ellegar skulu þú og landar þínir, íslensku glæpajúðarnir, fá að finna ærlega fyrir því. Ef þið farið að okkar vilja, mótbárulaust, skulum við vera tiltölulega rólegir í tíðinni. Ef ekki, þá skaltu vita að Bretland ræður yfir öflugum árásarher og kjarnorkuvopnum. Við látum ekki ómerkilega þúfutitlinga standa upp í hárinu á okkur fyrir framan alla heimsbyggðina.
Kær kveðja,
Gordon Brown, forsætisráðherra Stóra-Bretlands.
-KK
Brown sendi Geir Haarde bréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Við látum ekki ómerkilega þúfutitlinga standa aftur upp í hárinu á okkur fyrir framan alla heimsbyggðina.
Brynjólfur Ólafsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 18:51
Dear Geir.
I´ve got Björk and I am not returning her until you give me my money back.
PM Gordon Brown
Gordon Brown (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 19:08
Dear Brown,
If you promise to keep her, I will make sure you get all you money back.
PM Geir Haarde
Villi Asgeirsson, 10.10.2008 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.