Djöfullinn lifir sem fyrr sínu illa lífi
28.9.2008 | 22:36
"Ástölsk kona blindast í þrjá daga á sex daga fresti þar sem augu hennar lokast ósálfrátt og hún getur ekki opnað þau aftur." Á þessa leið hefst frétt á mbl.is. Í sömu frétt er leitt líkum að því að kona þessi sé með "dularfullan" sjúkdóm.
Ekki er þó sjúkdómur þessi dularfyllri en svo, að augljóst má vera að konan er haldin illum anda; anda sem á sín óðul í ríka myrkranna. Það kunnara en frá þurfi að segja, að Djöfullinn lifir sem fyrr sínu illa lífi og er síður en svo á undanhaldi, þrátt fyrir tækniframfarir og síaukna háskólamenntun á Vesturlöndum.
Og takið eftir, að sú konan sem hér um ræðir býr í Ástralíu. Það er varla tililviljun. Sá mikli kirkjufaðir, Ágústínus, þvertekur fyrir í sínum óskeikulu fræðum, að svokallaðir andfætlingar séu ekki til og þar með er ekki lengur grundvöllur fyrir tilvist Ástralíu þessarar sem svo er nefnd. Allt tal um Ástralíu og andfætlinga er þar af leiðandi uppspuni sem Djöfullinn hefir sáð í huga andvaralausra manna.
Hefði þessi hálfblinda manneskja átt heima í Palestínu á dögum frelsara vors, hefði hann af kærleik sínum án efa lagt yfir konuna hendur og rekið út af henni hinn illa anda og augu hennar hefðu haldist opin ævina á enda. En fyrst þessi auma systir okkar er í Ástralíu eru henni allar bjargir bannaðar. Þar í landi sem ekki skín annað ljós en villuljós hins illa er og heldur engrar lækningar að vænta.
Í Guðs friði.
SrB
Sjúkdómur veldur blindu í þrjá daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Facebook
Athugasemdir
ertu ad grínast í þvælu
Pétur (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 00:11
Sumt mun ég aldrei fá skilið. Hvernig djöfullinn lifir í nútíma samfélagin sem aldrei áður. Megi þessi kona brenna í helvíti fyrir syndir sínar. Augljósar syndir sem heimurinn hlær að í gegnum sjúkdóm hennar.
Í guðs nafni.
Daníel
Daníel Tryggvi (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 00:36
Er þetta eitthvað grín? Þvílík þvæla..
Róbert (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 02:28
Guð minn er góður guð, sem elskar menn konur börn og fyrirgefur sindir, en ég sé að þú trúir ekki á góðan Guð. Heldur eitthvað sem er illgjarnt. Passaðu þig, ef Guð hefur ekki kennt þér miskunsemi, þá er það kanski ekki Guð sem þú ert að leita til.
Ég mun byðja miskunsama skapara alheimsins að senda þér ljós, miskunsemi og kærleik í garð allra manna hvar sem þeir búa, opna augun þín fyrir friði hans. Að Guð leiði þig á fund lærðs manns sem getur útskírt myndmál og myndlýkngar í hinni helgu bók. Svo að þú lesir hana ekki lengur ein svona einn og óstuddur. Með minni dýpstu ósk um að þér líði vel um alla framtíð, og að þín fjölskilda og vandamenn hafi það sem berst.
Matthildur
Matthildur (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 10:29
hvað ertu að reykja...??
Aldís (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 15:01
Það skal viðurkennast að mér brá nokkuð í brún þegar ég leit yfir athugasemdir þær er gerðar hafa verið við pistil minn hér að ofan. Ég bjóst í sannleika sagt ekki við persónulegum aðdróttunum, guðlasti og spotti af lesendum í þeim mæli og raun ber vitni.
Aldís, þú spyrð mig hvað ég sé að reykja. Á bak við spurningu þina býr ill meining. Það er augljóst. Ég get svo sem sagt þér, að ég hefi aldrei reykt nokkurn skapan hlut.
Guðlastið sem kemur fram í athugasemd Matthildar er ekki svaravert. En ég bið að sjálfsögðu Guð að hjálpa henni. Og ég skap minnast hennar í kvöldbæn minni.
Róbert og Pétur: Þið ráfið um heimskir og skilningvana. Við svona menn, svona illgresi, nenni ég ekki að eyða orðum.
Og Daníel, ég vara þig við að freista Andskotans, en það gerir þú einmitt með orðum þínum.
Blaðamenn Foldarinnar, 29.9.2008 kl. 18:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.